Orri Hauksson forstjóri Símans og Selma Ágústsdóttir innanhússarkitekt gengu í heilagt hjónaband á skírdag. Athöfnin fór fram í litlu kirkjunni í Stykkishólmi og voru aðeins nánustu ættingjar viðstaddir.
Orri hefur verið áberandi í íslensku viðskiptalífi en hann tók við starfi forstjóra Skipta í október á síðasta ári eftir að hafa starfað sem framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins í þrjú ár. Þar á undan starfaði hann innan fjarskiptageirans. Selma lærði innanhússarkitektúr í Lundúnum og hefur hannað mörg af fallegri heimilum landsins síðustu ár.
Smartland Mörtu Maríu óskar þeim hjartanlega til hamingju með brúðkaupið!