Sigríður Dögg Arnarsdóttir, betur þekkt sem Sigga Dögg kynfræðingur, og fyrrverandi fótboltakappinn Sævar Eyjólfsson eru trúlofuð. Frá þessu greindi Sigga í færslu á Instagram en börn þeirra beggja fengu að taka þátt í bónorðinu.
Sigga og Sævar hafa verið saman frá því um mitt ár 2020.
„Sumar konur þurfa ekkert minna en tvö bónorð, sex manneskjur og tvo hringa til að bræða ... og segja eitt oggiponsu lítið já,“ skrifar Sigga í færslu á Instagram. Hún lýsir því hvernig börnin hafi komið hlaupandi upp í rúm til hennar með hring og spurt hvort hún vildi giftast honum.
Sigga á þrjú börn úr fyrra hjónabandi og Sævar eina dóttur. Þau dvelja nú öll saman í útlöndum yfir hátíðirnar.
Smartland óskar þeim innilega til hamingju með ástina!