Matreiðslubókarhöfundurinn, lífefnafræðingurinn og áhrifavaldurinn Linda Ben gengur að eiga unnusta sinn í haust. Parið hnaut um hvort annað fyrir 17 árum og hefur verið trúlofað í 6 ár. Sá heppni heitir Ragnar Einarsson og er viðskiptafræðingur. Parið á tvö börn sem fædd eru 2013 og 2019.
Frá því þau kynntust hafa þau staðið í allskonar stórræðum eins og að byggja hús, breyta, bæta og laga. Nú búa þau í fallegu húsi í Mosfellsbæ sem þau byggðu sjálf frá grunni. Ragnar er handlaginn með eindæmum en það er faðir Lindu líka og hefur fjölskyldan hjálpast að.
Smartland óskar þeim til hamingju með þá ákvörðun að ganga í hjónaband!