Guðmundur Arnar Guðmundsson, eigandi Akademias og Hoobla, og Klara Briem lögfræðingur eru hætt saman.
Guðmundur Arnar hefur verið áberandi í viðskiptalífinu en hann var áður markaðsstjóri Nova, Íslandsbanka og Wow air áður en hann stofnaði Akademias og kom inn í hluthafahóp Hoobla. Klara er lögfræðingur og verkefnisstjóri félags- og vinnumarkaðsráðuneytisins. Hún starfaði áður hjá LOGOS logmannsþjónustu.
Klara og Guðmundur Arnar voru saman í 12 ár en nú hafa þau ákveðið að fara hvort í sína áttina.
Smartland óskar þeim góðs gengis í framtíðinni!