Nígeríska landsliðið það best klædda

Nígeríska landslið var flott á leiðinni til Rússlands.
Nígeríska landslið var flott á leiðinni til Rússlands. skjáskot/Twitter

Ísland leikur á móti Nígeríu í öðrum leik sínum á heimsmeistaramótinu í knattspyrnu í Rússlandi. Úrslit leiksins eiga eftir að koma í ljós en að mati Vogue vann nígeríska landsliðið keppnina um best klædda liðið á mótinu.

Landsliðsbúningur Nígeríu hefur ekki bara slegið sölumet heldur þóttu Nígeríumennirnir afar smart í tauinu á leiðini til Rússlands. Íslenska landsliðið klæddist jakkafötum frá Herragarðinum á leiðinni til Rússlands en Nígeríumennirnir voru hins vegar í öllu hressilegri klæðnaði, hvítum fötum með grænu munstri. 

Bindi íslensku landsliðsmannanna vöktu athygli og það gerðu aukahlutir Nígeríumanna líka. Hattarnir þykja flottir með grænu fjöðrunum og skórnir voru ekki síðri, hvítir með grænum dúskum. 

Nígeríska landsliðið spilar í búningum frá Nike.
Nígeríska landsliðið spilar í búningum frá Nike. AFP
Íslensku landsliðsmennirnir voru flottir í jakkafötum á leiðinni til Rússlands.
Íslensku landsliðsmennirnir voru flottir í jakkafötum á leiðinni til Rússlands. mbl.is/Eggert Jóhannesson
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál