Meghan hertogaynja kom á óvart í gærkvöldi þegar hún klæddist gulum síðum kjól. Hertogaynjan var bersýnilega í sumarskapi en hún hefur hingað til verið þekkt fyrir að klæðast hlutlausum litum. Í rauninni hafði Meghan ekki sést í öðru en ljósu og bleiku síðan hún gekk formlega í bresku konungsfjölskylduna.
Hvort sem hún tók umfjöllunina um hvítu og bleiku fötin til sín eða ekki þá leit hún afar vel út í síðum þröngum kjól. Kjóllinn er frá Brandon Maxwell en hann skaust upp á stjörnuhimininn í tískuheiminum fyrir að vera stílisti Lady Gaga. Melania Trump, forsetafrú Bandaríkjanna, klæddist kjól í sama sniði frá hönnuðinum í vetur.
Kjóllinn var fáanlegur á netversluninni Moda Operandi en er að sjálfsögðu uppseldur eins og annað sem hertogaynjan klæðist. Upphaflega kostaði kjóllinn 1.392 pund eða rétt tæpar 200 þúsund krónur en virðist hafa verið kominn á 50 prósent afslátt í lokin.