Það vilja flestir líta sem best út á brúðkaupsdaginn. Förðun getur þar skipt gífurlega miklu máli eins og förðunarfræðingurinn Arber Bytyqi sýnir vel á Instagram-síðu sinni. Hann er duglegur að birta myndir af konum sem eru að fara gifta sig bæði áður en hann farðar þær og eftir og eru þær nær óþekkjanlegar eftir að búið er að eiga við andlit þeirra.
Förðunarfræðingurinn hefur vakið athygli fyrir myndir sínar og í viðtali við Bored Panda á dögunum sagði hann farða vera eins og skartgripi á andlitið. Hvetur hann alla til þess að leika sér með farða og ekki vera hrædda við að breyta útliti sínu. „Í lok dagsins þrífur þú það bara,“ segir hann um andlitið.
Brúðirnar sem hann birti myndir af voru greinilega ekki hræddar við að breyta útliti sínu og það gæti hvarflað að einhverjum sem sér myndirnar að eiginmenn þeirra hafi ekki þekkt þær í athöfninni. Segir Bytyqi að konurnar ráði hvort þær vilji náttúrulegt eða dramatískt útlit og síðan er förðunin ákveðin með tilliti til brúðarkjólsins.