Celine Dion á 10 þúsund skópör

Celine Dion á 10 þúsund skópör.
Celine Dion á 10 þúsund skópör. AFP

Tónlistarkonan Celine Dion greindi frá því nýlega að hún eigi 10 þúsund skópör. Augljóslega þarf mikið skápapláss til að geyma alla þessa skó og fjárfesti hún því í vöruhúsi til að geyma alla skóna. 

Dion hefur áður talað um skó sína og að hún eigi mörg pör. Þegar hún bjó í Florida-ríki lét hún smíða rafknúinn skóskáp. Hún flutti nýlega alla búslóðina til Las Vegas, en hún er með fastar sýningar á Caesar's Palace þar í borg. Hún hefur nú komið sér og búslóð sinni almennilega fyrir í Las Vegas og geymir bróðurpart skóna í vöruhúsi. 

Celine Dion er ekki bara söngdíva heldur líka algjör tískudíva.
Celine Dion er ekki bara söngdíva heldur líka algjör tískudíva. mbl.is/AFP

Hún sagði í viðtali við WWD að hún gæti ómögulega hent einhverju. „Ég get ekki gefið neitt frá mér, því allir þessir hlutir sem ég hef keypt hafa komið mér á þann stað sem ég er í kvöld. Þeir eru hluti af hverju skrefi sem ég hef tekið og ég er tengd þeim. Þú má kalla það galið. Ég geymi allt, ég kaupi bara stærri hús,“ sagði Dion.

Dion hefur einnig viðurkennt að tískan, fötin og skórnir, hjálpi henni að takast á við fráfall eiginmanns hennar og að skápnum hafi vaxið fiskur um hrygg síðan hann lést. Eiginmaður hennar, René Angélil, féll frá í ársbyrjun 2016.

Dion og Angelil árið 2008.
Dion og Angelil árið 2008. VALERY HACHE
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál