Stjörnurnar voru mættar í sínu fínasta pússi þegar People's Choice Awards fór fram á sunnudaginn. Gegnsætt var áberandi á rauða dreglinum sem og flegnar flíkur. Einnig fór mikið fyrir stuttum kjólum og pilsum.
Klæðnaður söngkonunnar Gwen Stefani stóð upp úr á hátíðinni en það var vel við hæfi þar sem Stefani fékk verðlaun fyrir tísku. Stefani mætti í áberandi stórum hvítum kjól frá Veru Wang. Kjóllinn var stuttur að framan en síður að aftan. Við kjólinn var hún í netasokkabuxum og háum stígvélum.
Gwen Stefani var bæði fáguð og rokkaraleg.
AFP
Kourtney Kardashian mætti í engu nema litlum brjóstahaldara undir buxnadragt.
AFP
Leikkonan Maggie Q í flegnu.
AFP
Kim Kardashian í flegnum gömlum kjól frá Versace.
AFP
Khloé Kardashian ekki í flegnum kjól heldur gegnsæjum.
AFP
Destiny's Child-stjarnan Kelly Rowland í gegnsæjum þröngum kjól.
AFP
Pink var í bleikum gegnsæjum bol undir jakkanum.
AFP
Kelsea Ballerini í stuttu pilsi með bert á milli.
AFP
Brittany Snow var í gegnsæju.
AFP
Leikkonan Bellamy Young í flegnu.
AFP