Húðmeðferð sem breytir ekki andlitinu

Arna Björk Kristinsdóttir, húðlæknir hjá Húðlæknastöðinni, segir að Profhilo-meðferðin njóti vinsælda hjá báðum kynjum en meðferðin stinnir húðina og veitir meiri ljóma án þess að breyta útliti fólks. 

„Profhilo er ein af þeim nýju skemmtilegu húðmeðferðum sem við bjóðum á Húðlæknastöðinni. Meðferðin er búin að vera á markaðnum erlendis frá árinu 2015, nýtur sívaxandi vinsælda og hefur unnið til fjölda verðlauna.

Profhilo-efnið sjálft er hrein hýalúrónsýra sem örvar nýmyndun kollagens og elastíns í húðinni og gefur þannig frísklegra útlit og stinnir húðina. Meðferðin er líka mjög rakagefandi fyrir húðina og þar af leiðandi fær húðin þennan eftirsótta og heilbrigða ljóma.

Efninu er sprautað undir húðina og þar dreifir það sér vel. Þó svo að Profhilo sé hýalúrónsýra eins og fylliefnin sem við notum mest í dag er Profhilo alveg fljótandi og gefur þar af leiðandi enga fyllingu eins og fylliefnin aftur á móti gera. Meðferðin breytir því ekki andlitsdráttum eða útliti á nokkurn hátt sem margir geta verið svolítið hræddir við.

Hægt er að meðhöndla nánast hvaða svæði sem er með Profhilo, andlit, háls, bringu og handarbök svo eitthvað sé nefnt,“ segir Arna Björk.

Aðspurð fyrir hverja meðferðin er segir hún að þetta sé meðferð fyrir þá sem vilja stinnari húð.

„Meðferðin hentar nánast öllum og er algjörlega bæði fyrir konur og karla. Þetta er frábær meðferð fyrir alla þá sem finnst húðin vera farin að slappast og vilja ferskara útlit. Meðferðin er tilvalin með öðrum meðferðum, til dæmis lasermeðferðum, medical peel, PRX-T33 peel og örnálameðferð. Til að ná sem bestum árangri mælum við með tveimur meðferðum með fjögurra vikna millibili. Meðferðin sjálf tekur um það bil 30 mínútur og oftast tekur ekki langan tíma að jafna sig. Fyrst á eftir getur fólk búist við smá roða og bólgum í húðinni á stungustöðunum en það jafnar sig yfirleitt á nokkrum klukkutímum.“

Profhilo betra en toxín?

„Þetta eru í raun tvær alveg ólíkar meðferðir. Toxíni er sprautað á ákveðin svæði og hefur þar staðbundin vöðvaslakandi áhrif. Vinsæl svæði til að meðhöndla með toxíni eru til dæmis milli augabrúnanna og enni. Galdurinn við meðferð með toxínum er að nota alls ekki of mikið af efninu því flest viljum við halda andlitshreyfingunum upp að vissu marki og ekki vera alveg svipbrigðalaus. Profhilo-meðferðin og meðferð með toxínum vinna mjög vel saman,“ segir hún.

Hvað yngist fólk um mörg ár eftir Profhilo-meðferð?

„Eins og með allar aðrar meðferðir er árangurinn einstaklingsbundinn. Þar sem Profhilo-meðferð er ekki að breyta útliti eins og til dæmis fylliefnameðferðir og meðferð með toxínum gera er árangurinn kannski ekki eins sýnilegur öðrum. Húðin verður samt öll þéttari og áferðarfallegri. Hún fær meiri raka og ljóma og verður því oft eins og við munum hana þegar við vorum yngri.

Fjarlægir meðferðin bauga?

Þó að Profhilo-meðferðin sé frábær og hafi ýmiskonar góð áhrif á húðina er meðferðin ekki sérstaklega hugsuð fyrir augnsvæðið. Meðferðin hefur því ekki bein áhrif á bauga, til þess eru til aðrar og betri meðferðir.“

Myndir þú segja að þessi meðferð virkaði eins og fótósjopp?

„Að vissu leyti má segja að meðferðin sé svolítið eins og fótósjopp því allar misfellur eins og til dæmis svitaholur verða minna áberandi og húðin fær fallegan ljóma sem við sækjumst eftir. Einnig verður áferð húðarinnar fallegri og fínar línur ekki eins sýnilegar.“

Hvað er PRX-T33 peel?

„PRX-T33 er ný kynslóð af TCA-sýrum (trichloroacetic acid). Meðferðin örvar frumur húðarinnar til að endurnýja sig án þess að nokkur skaði verði á yfirhúðinni. Þetta þýðir að það verður lítill sem enginn roði eða flögnun í húðinni eftir meðferðina.

Meðferðin er frábær fyrir þá sem vilja fá betri áferð á húðina og fyrirbyggja öldrun. Meðferðin vinnur líka á ýmsum húðvandamálum, til dæmis litabreytingum, örum, svitaholum og sliti.

TCA-sýrur hafa verið notaðar í mörg ár til að vinna gegn öldrun húðarinnar og bæta áferð hennar. Gallinn við TCA-sýrurnar er þó sá að þær eru ertandi fyrir húðina og því getur tekið langan tíma að jafna sig eftir slíka meðferð. PRX-T33-meðferðin er sérstaklega hönnuð þannig að hún eigi ekki að erta húðina. Búið er að blanda saman TCA-sýru, vetnisperoxíði (H2O2) og Kojic-sýru á sérstakan hátt. Maður fær því öll jákvæðu áhrif TCA-sýrunnar án aukaverkananna.

PRX-T33-meðferðin er frábær með öðrum húðmeðferðum, t.d. Profhilo, fylliefnum, toxínum og örnálameðferð.“

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál