Skotheld greiðsla fyrir rigningarhelgi

Fléttutagl er hin fullkomna útilegu greiðsla, sama hvernig viðrar.
Fléttutagl er hin fullkomna útilegu greiðsla, sama hvernig viðrar. Samsett mynd

Eins og fram hefur komið ríkir mikið óvissuástand um veðrið yfir verslunarmannahelgina. Þó við höldum fast í vonina um góða veðrið vitum við að á Íslandi er alltaf gott að vera vel undirbúinn og því tilvalið að prófa þessa skotheldu greiðslu sem er að gera allt vitlaust á samfélagsmiðlum þessa dagana. 

Hvort sem þú ætlar að syngja hástöfum í dalnum eða skella þér í góða útilegu hentar hárgreiðslan sérlega vel, en hún er í senn einföld og fljótleg. Það eina sem þú þarft er hárbursti og tvær teygjur, en fyrir þá sem vilja taka greiðsluna alla leið getur verið gott að eiga smá hárgel til að sleikja taglið vel aftur fyrir átök helgarinnar. 

Hér má sjá einfalt TikTok kennslumyndband, en svo er hægt að prófa sig áfram með ýmsar útfærslur af taglinu og fléttunni. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál