Cardi B elskar nærfatalínu Kardashian

Cardi B veit hvað hún syngur.
Cardi B veit hvað hún syngur. AFP

Raunveruleikastjarnan Kim Kardashian hefur verið dugleg að fá til liðs við sig þekktar konur úr Hollywood til að kynna nýjustu nærfata- og baðfatalínur tískumerkisins SKIMS. Í þetta sinn er það rapparinn Cardi B sem situr fyrir í nýjustu bómullarnærfötum merkisins. 

„Ég hef alltaf elskað SKIMS,“ sagði rapparinn í yfirlýsingu. „Nærfötin eru sexí og láta mér líða vel.“

Bómullarnærfötin eru með vinsælustu vörum SKIMS og er nýjasta línan innblásin af tónlistarkonunni, bæði söngferli hennar og uppvexti í Bronx-hverfinu í New York. 

Auglýsingaherferðinni var leikstýrt af ljósmyndaranum og listakonunni, Vanessu Beecroft. Hún vinnur mikið með Kardashian og á heiðurinn af mörgum auglýsingaherferðum SKIMS.

Fyrr á þessu ári léku þær SZA, Carmen Electra og Jenny McCarthy í auglýsingum fyrir tískumerkið. Einnig hafa þær Brooke Shields, Chelsea Handler, Nelly Furtado og Kim Cattrall stillt sér upp í SKIMS.

Kardashian stofnaði SKIMS árið 2019 og hefur fyrirtækið blómstrað síðastliðin ár. SKIMS hefur þó sætt gagnrýni fyrir stærðir og snið.

View this post on Instagram

A post shared by Cardi B (@iamcardib)

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

endurskoðandi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

ráðgjafi hjá Fyrsta skrefinu og umsjónarmaður Meðvirknipodcastsins

svarar spurningum um lögfræðileg mál

lýtalæknir svarar spurningum lesenda

fasteignasali svarar spurningum lesenda