Dagur samdi við Keflvíkinga

Dagur Dan Þórhallsson í búningi Keflavíkur.
Dagur Dan Þórhallsson í búningi Keflavíkur. Ljósmynd/Total Football

Knattspyrnumaðurinn Dagur Dan Þórhallsson hefur samið við Keflvíkinga um að leika með þeim á komandi keppnistímabili en hann kemur til þeirra frá Gent í Belgíu.

Dagur, sem verður 18 ára í maí byrjun, er sóknartengiliður sem ólst upp hjá Haukum og lék sex leiki með þeim í 1. deildinni 2016, þá aðeins sextán ára gamall, en fór síðan til Belgíu. Hann á að baki 12 leiki fyrir U17 ára landslið Íslands.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert