Óli Stefán Flóventsson, nýráðinn þjálfari karlaliðs KA í knattspyrnu, er kominn með aðstoðarþjálfara sér við hlið til næstu tveggja ára.
KA hefur samið við Svein Þór Steingrímsson, sem kemur til félagsins frá Dalvík/Reyni, en Sveinn kom liðinu upp í 2. deild í sumar. Sem leikmaður lék Sveinn með Grindavík, Njarðvík, GG, Hamri, Þrótti Vogum, Magna og Dalvík/Reyni. Með Grindavík lék Sveinn einmitt með Óla Stefáni og þekkjast þeir því vel.
Á heimasíðu KA er greint frá mikilli ánægju með komu Sveins til félagsins og að spennandi verði að fylgjast með samstarfi þeirra Óla Stefáns með liðið.