Gylfi Þór Sigurðsson og Sara Björk Gunnarsdóttir hafa verið valin knattspyrnufólk ársins hjá Knattspyrnusambandinu.
Þetta er fjórða árið í röð sem Gylfi og Sara hljóta þessar viðurkenningar hjá KSÍ. Gylfi hefur nú verið valinn átta sinnum á síðustu níu árum og Sara í fimmta skipti á síðustu sex árum.
Fram kemur að Alfreð Finnbogason hafnaði í 2. sæti og Jóhann Berg Guðmundsson í 3. sæti. Sif Atladóttir varð í 2. sæti á eftir Söru og Glódís Perla Viggósdóttir í 3. sæti. Öll eru þau atvinnumenn í íþróttinni.
Hér má lesa umsögn um leikmennina sex hjá KSÍ: