Fyrsta æfing landsliðsins í sólinni

Gylfi Þór Sigurðsson og Antoine Griezmann kljást eftir helgi.
Gylfi Þór Sigurðsson og Antoine Griezmann kljást eftir helgi. AFP

Íslenska karlalandsliðið í knattspyrnu hóf í dag undirbúning sinn fyrir fyrstu tvo leikina í undankeppni Evrópumótsins 2020. Ísland mætir Andorra á föstudag og heimsmeisturum Frakka á mánudag.

Íslenska liðið kom saman á Spáni í dag þar sem það verður við æfingar áður en haldið er til Andorra fyrir leikinn. Engar fréttir hafa borist af skakkaföllum hjá íslensku leikmönnunum og eru því allir heilir eftir því sem næst verður komist.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert