Vestri upp að hlið ÍBV og Þórs

Vestramenn eru að gera fína hluti í 1. deildinni.
Vestramenn eru að gera fína hluti í 1. deildinni. mbl.is/Íris

Vestri hafði betur gegn Leikni Fáskrúðsfirði, 2:0, á heimavelli í Lengjudeild karla í fótbolta í dag, 1. deild. Með sigrinum fór Vestri upp í 26 stig og upp að hlið Þórs og ÍBV í fjórða og fimmta sæti. 

Spánverjinn Nacho Gil kom Vestra yfir á 11. mínútu og Viktor Júlíusson bætti við marki á 69. mínútu og þar við sat. 

Leiknir er í fallsæti og hefur ekki unnið í síðustu átta leikjum. Austfirðingar eru því í mikilli hættu á að falla aftur niður í 2. deild. 

Staðan: 

  1. Fram 33
  2. Keflavík 31
  3. Leiknir R. 30
  4. ÍBV 26
  5. Þór 26
  6. Vestri 26
  7. Grindavík 23
  8. Afturelding 18
  9. Víkingur Ó. 16
  10. Þróttur R. 12
  11. Leiknir F. 12
  12. Magni 9
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert