Ríkjandi Íslandsmeistarar Vals höfðu betur gegn Armeníumeisturum Hayasa, 2:0, þegar liðin áttust við í undanúrslitum 1. umferðar Meistaradeildar Evrópu í knattspyrnu kvenna í Radenci í Slóveníu í dag.
Valskonur byrjuðu af krafti þar sem Cyera Hintzen og Sólveig Jóhannesdóttir Larsen komust báðar nálægt því að koma liðinu í forystu á fyrstu tíu mínútunum.
Á 14. mínútu braut Hintzen svo ísinn með frábæru einstaklingsframtaki.
Hún fékk þá boltann frá Ásdísi Karen Halldórsdóttur rétt fyrir framan miðju, tók á rás, sá glufu í vörn Hayasa og brunaði framhjá tveimur varnarmönnum, lét svo vinstri fótar skot ríða af nýkomin inn í vítateig og það hafnaði niðri í fjærhorninu. Kateryna Boklach í marki Hayasa var í boltanum en tókst ekki að halda honum úti.
Lára Kristín Pedersen komst nálægt því að tvöfalda forystuna á 21. mínútu en skot hennar við markteig í kjölfar hornspyrnu fór í varnarmann rétt fyrir framan marklínuna og þaðan aftur fyrir í aðra hornspyrnu.
Valur stýrði ferðinni alfarið í fyrri hálfleiknum en eftir um hálftíma leik fór aðeins að draga af Valskonum og allar líkur eru á að aðstæður hafi þar haft mikið að segja enda steikjandi hiti í Radenci sem hækkaði einungis eftir því sem leið á leikinn og var mest orðinn 33 gráður í síðari hálfleik.
Þá var völlurinn þurr og slakur, sem varð þess valdandi að fyrsta snerting Valskvenna klikkaði óvenju oft, ekki síst þegar liðið var við það að koma sér í góðar stöður.
Staðan var því 1:0 fyrir Val í leikhléi.
Síðari hálfleikurinn var tíðindalítill.
Valskonum tókst erfiðlega að skapa sér góð færi lengst framan af hálfleik en komust þó mjög nálægt því í þrígang en hættulegar fyrirgjafir enduðu ýmist í fangi Boklach eða voru ögn of fastar.
Á 83. mínútu fékk Hintzen loks kjörið tækifæri til þess að tvöfalda forystu Vals en skot hennar á lofti af markteig eftir skallasendingu Mist Edvardsdóttur fór yfir markið.
Undur lok leiks tókst Val loks að tvöfalda forystuna. Varamaðurinn Mariana Speckmaier slapp þá ein í gegn hægra megin eftir laglegan samleik við annan varamann, Elínu Mettu Jensen, Speckmaier reyndi svo fyrirgjöf með jörðinni sem fór í höndina á Olhu Basanska, varnarmanni Hayasa, og vítaspyrna réttilega dæmd.
Speckmaier steig sjálf á vítapunktinn og skoraði af feikna öryggi þegar hún smellti boltanum einfaldlega upp í samskeytin, óverjandi fyrir Boklach sem fór í rétt horn.
Staðan því orðin 2:0 og reyndust það lokatölur, sem þýðir að Valur er komið áfram í úrslitaleik 1. umferðar Meistaradeildar Evrópu.
Valur mætir annað hvort Pomurje frá Slóveníu eða Shelbourne frá Írlandi í úrslitaleik um sæti í 2. umferð, en þau mætast síðar í dag. Úrslitaleikurinn fer fram þann 21. ágúst á sama velli í Radenci í Slóveníu.