Danijel ískaldur á punktinum á landsliðsæfingu

Hér er Danijel Dejan Djuric á æfingunni.
Hér er Danijel Dejan Djuric á æfingunni. Ljósmynd/KSÍ

Mikil stemmning er hjá karlalandsliði Íslands í knattspyrnu þessa stundina en leikið verður gegn Sádí-Arabíu á sunnudaginn kemur. Landsliðið hefur æft fyrir leikinn í Sameinuðu arabísku furstadæmunum en leikurinn fer þar fram í Abu Dhabi.

Hópurinn er fjölbreyttur og margir leikmenn úr Bestu deildinni eru í honum í þessu verkefni. Fyrirliðinn, Aron Einar Gunnarsson, er einnig í hópnum og mun leika sinn 100. leik gegn Sádí-Arabíu. 

Á æfingu skipti landsliðið sér í tvo hópa og fór í vítaspyrnukeppni á milli yngri og eldri leikmanna, kallað „gamlir vs ungir.“ 

Úrslitavítaspyrnunnar tók Danijel Dejan Djuric, leikmaður Víkings úr Reykjavík, og hann var ansi öruggur í bæði skipti. Hér fyrir neðan má sjá myndskeið frá því. 

Hér má svo sjá fleiri myndir af æfingunni:

Jónatan Ingi Jónsson á æfingunni.
Jónatan Ingi Jónsson á æfingunni. Ljósmynd/KSÍ
Logi Tómasson á æfingunni.
Logi Tómasson á æfingunni. Ljósmynd/KSÍ
Óttar Magnús Karlsson á æfingunni.
Óttar Magnús Karlsson á æfingunni. Ljósmynd/KSÍ
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert