Wenger staðfestir brotthvarfið

Francis Coquelin og Arsene Wenger.
Francis Coquelin og Arsene Wenger. AFP

Arsene Wenger, knattspyrnustjóri Arsenal, staðfesti eftir markalaust jafntefli við Chelsea í fyrri viðureign liðanna í undanúrslitum enska deildabikarsins að franski miðjumaðurinn Francis Coquelin er á förum.

Spænska félagið Valencia hefur komist að samkomulagi um kaupverðið, sem er 12 milljónir punda. Cocuelin hefur lítið komið við sögu hjá Lundúnaliðinu á tímabilinu og hefur aðeins einu sinni verið í byrjunarliðinu í deildinni en framar í goggunarröðinni hjá Wenger eru þeir Jack Wilshere, Aaron Ramsey og Granit Xhaka.

Coquelin á að baki 160 leiki fyrir Arsenal en hefur í þeim ekki náð að skora eitt einasta mark.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert