Sky á Ítalíu greinir frá því í dag að Manchester United vilji fá Sílemanninn Alexis Sánchez til liðs við sig frá Arsenal.
Sánchez hefur verið sterklega orðaður við Manchester City en samningur hans við Arsenal rennur út í sumar.
Ítalski fjölmiðillinn segir að Manchester United sé reiðubúið að láta Arsenal fá Armenann Henrikh Mkhitaryan upp í kaupin á Sánchez en Mkhitaryan hefur átt erfitt uppdráttar hjá Manchester-liðinu á þessu tímabili.