Argentínski varnarmaðurinn Nicolas Otamendi hefur skrifað undir nýjan samning við Manchester City og er nú samningsbundinn liðinu til ársins 2022.
Otamendi hefur verið afar öflugur í frábæru liði City á leiktíðinni. Hann hefur aðeins misst af einum af 23 leikjum liðsins í deildinni og hefur skorað 5 af mörkum City-liðsins í deildinni á tímabilinu.
Argentínumaðurinn, sem er 29 ára gamall, kom til Manchester City frá spænska liðinu Valencia fyrir þremur árum.