De Bruyne samdi til fimm ára

Kevin De Bruyne.
Kevin De Bruyne. AFP

Belgíski miðjumaðurinn Kevin de Bruyne skrifaði nú í kvöld undir nýjan fimm ára samning við Manchester City.

Belginn frábæri er nú samningsbundinn City til ársins 2023. Hann kom til Manchester-liðsins frá Wolfsburg árið 2015 og hefur skorað 31 mark í 128 leikjum með liðinu. Þá hefur hann gefið 38 stoðsendingar í ensku úrvalsdeildinni og hefur á þessu tímabili verið einn besti leikmaður deildarinnar.

Á þessu tímabili hefur hann spilað 32 leiki í öllum keppnum þar sem hann hefur skorað 8 mörk og hefur lagt upp 13.

„Ég er virkilega ánægður að hafa skrifað undir þennan samning,“ segir De Bruyne á vef City en hann er 26 ára gamall og einn af lykilmönnunum í mögnuðu liði Manchester City.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert