Skondið atvik átti sér stað á blaðamannafundi Antonio Conte, knattspyrnustjóra Chelsea, í dag fyrir viðureign liðsins gegn Burnley í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu annað kvöld.
Ítalinn var að reyna að svara blaðamanni um yfirvofandi leikbann Marcos Alonso þegar farsíminn hans hringdi.
Conte var snöggur að viðurkenna að þetta væri eiginkona hans að hringja og sá hann fyndnu hliðina á atvikinu.
„Þetta var konan mín, alltaf á versta mögulega tíma. Afsakið þetta,“ sagði hann og hló við.
„Þið megið sekta mig fyrir þetta, ég hefði orðið pirraður ef þetta hefði gerst hjá ykkur,“ bætti hann við en Chelsea er í 5. sæti deildarinnar með 60 stig, átta stigum frá grönnum sínum í Tottenham sem hafa leikið einum leik meira.
Myndskeið af uppákomunni má sjá hér að neðan.
Antonio Conte's Chelsea press conference was disturbed today by a phone call from his wife..
— Soccer AM (@SoccerAM) April 18, 2018
'Remember to grab some milk, Antonio!' 🥛😆 pic.twitter.com/PZ249qPQx1