Kane skipaður fyrirliði

Harry Kane.
Harry Kane. AFP

Gareth Southgate, landsliðsþjálfari Englendinga í knattspyrnu, hefur skipað Harry Kane, framherja Tottenham, fyrirliða landsliðsins sem er á leið á HM í Rússlandi.

Kane, sem er 24 ára gamall og hefur skorað 12 mörk í 23 leikjum með Englendingum, bar fyrirliðabandið með enska landsliðinu fyrst í leik gegn Skotum í undankeppni HM síðastliðið sumar en hann hefur alls verið fyrirliði liðsins í þremur leikjum.

Wayne Rooney var fyrirliði enska landsliðsins á Evrópumótinu í Frakklandi fyrir tveimur árum en Rooney hefur sagt skilið við enska landsliðið.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert