Verðskuldaði brottreksturinn

José Mourinho er farinn frá Manchester United.
José Mourinho er farinn frá Manchester United. AFP

Jamie Redknapp fyrrverandi leikmaður Liverpool og Tottenham og nú sparkspekingur á Sky Sports og fleiri fjölmiðlum segir að José Mourinho hafi verðskuldað fengið sparkið frá Manchester United.

„Það fór allt úrskeiðis hjá Mourinho með Manchester United. Ég tel hann ekki hafa verið rétta stjórann fyrir þann leikstíl sem United hefur verið með gegnum árum. Hann var kominn í stríð við stjórnina og nokkra leikmenn og að mínu viti var óhjákvæmilegt fyrir United annað en að hann láta hann fara,“ segir Redknapp.

Líklegt þykir að Michael Carrick muni taka við liði Manchester United til bráðabirgða og muni stýra liðinu út leiktíðina en Carrick var fyrir tímabilið ráðinn aðstoðarmaður Mourinho.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert