Arnautovic er ekki til sölu

Marko Arnautovic.
Marko Arnautovic. AFP

Enska úrvalsdeildarliðið West Ham hefur gefið út yfirlýsingu um að austurríski landsliðsmaðurinn Marko Arnautovic sé ekki til sölu.

Fregnir bárust af því í gærkvöld að ónefnt kínverskt lið hafi boðið West Ham 35 milljónir punda í sóknarmanninn en því tilboði var snarlega hafnað af forráðamönnum West Ham.

Arnautovic, sem er 29 ára gam­all, kom til West Ham frá Stoke í júlí 2017. Hann er marka­hæsti leikmaður Lund­únaliðsins á tíma­bil­inu, hef­ur skorað 8 mörk í 17 leikj­um liðsins í öll­um keppn­um. Hann er samn­ings­bund­inn West Ham til árs­ins 2022.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert