Silva í sögubækurnar hjá City

David Silva.
David Silva. AFP

Spænski miðjumaðurinn David Silva skrifaði nafn sitt á spjöld sögunnar hjá Manchester City í kvöld þegar liðið vann 3:0-sigur á Wolves í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu.

Þetta var 267. leikur Silva fyrir City í úrvalsdeildinni og hefur nú enginn leikmaður í sögu félagsins spilað fleiri leiki fyrir liðið í úrvalsdeildinni. Fyrir leikinn var Joe Hart jafn honum með 266 leiki.

Þeir sem koma á eftir Silva og Hart eru Vincent Kompany með 257 leiki, Richard Dunne með 253 leiki og Yaya Touré með 230 leiki. Aðeins hinn fyrstnefndi er, ásamt Silva, enn á mála hjá félaginu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert