Jón Daði Böðvarsson og liðsfélagar hans hjá Reading eru áfram í fallsæti ensku B-deildarinnar í fótbolta eftir 1:2-tap fyrir Derby í dag. Jón Daði var í byrjunarliði Reading og spilaði fyrstu 63 mínúturnar.
Birkir Bjarnason var sömuleiðis í byrjunarliði Aston Villa sem gerði 2:2-jafntefli við Hull á heimavelli. Birkir spilaði fyrstu 75 mínúturnar á miðjunni hjá Villa.
Reading er í 22. sæti, tveimur stigum frá Rotherham sem er í síðasta örugga sæti deildarinnar. Aston Villa er í 12. sæti með 39 stig, sjö stigum frá umspilssætum um sæti í efstu deild.