Það er spennandi barátta um markakóngstitilinn í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu en eftir leikina um helgina eru þrír leikmenn markahæstir í deildinni.
Sergio Agüero, Mohamed Salah og Pierre-Emerick Aubameyang hafa allir skorað 19 mörk og á hæla þeirra kemur Sadio Mané með 18 mörk.
Markahæstu leikmenn:
19 - Sergio Agüero, Manchester City
19 - Mohamed Salah, Liverpool
19 - Pierre-Emerick Aubameyang, Arsenal
18 - Sadio Mané, Liverpool
17 - Harry Kane, Tottenham
17 - Raheem Sterling, Manchester City
16 - Eden Hazard, Chelsea
16 - Jamie Vardy, Leicester
13 - Gylfi Þór Sigurðsson, Everton
13 - Richarlison, Everton
13 - Paul Pogba, Manchester United
13 - Alexandre Lacazette, Arsenal