Lingard hagar sér eins og bjálfi

Jesse Lingard.
Jesse Lingard. AFP

Knattspyrnumaðurinn Jesse Lingard kemst reglulega í fréttirnar fyrir uppátæki sín á samfélagsmiðlum en þessi sóknarmaður Manchester United á Englandi er virkur á Instagram.

Á dögunum birti hann myndskeið frá sumarfríi sínu í Miami í Bandaríkjunum þar sem hann ofbauð fylgjendum sínum fyrir að vera heldur klúryrtur. Margir hafa gagnrýnt hann fyrir þessa hegðun og þá hefur gamla United kempan Gary Neville blandað sér í málin.

„Að leikmaður fari á samfélagsmiðla til að haga sér eins og bjálfi á meðan hann er ekki að vinna fótboltaleiki er rosalega slæm blanda,“ sagði Neville á Sky en Lingard átti erfitt uppdráttar með United í vetur.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert