Tíu leikmenn Arsenal unnu dramatískan 3:2-sigur gegn nýliðum Aston Villa á Emirates í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í dag. Arsenal missti leikmann af velli með rautt spjald snemma leiks og gestirnir komust í tvígang yfir.
Joe McGinn kom Aston Villa óvænt yfir á 20. mínútu og vont varð verra fyrir Arsenal þegar Ainsley Maitland-Niles fékk sitt annað gula spjald og þar með rautt á 41. mínútu, 1:0 fyrir gestina í hálfleik.
Hér að ofan má sjá öll fimm mörkin úr leiknum. Hér að neðan má sjá svipmyndir úr leik Crystal Palace og Wolves sem fram fór fyrr í dag.