Mikið stuð á Old Trafford

Marcus Rashford fagnar marki sínu og þriðja marki Manchester United …
Marcus Rashford fagnar marki sínu og þriðja marki Manchester United á Old Trafford í Manchester í gær. AFP

Manchester United lék á als oddi þegar liðið fékk serbneska liðið Partizan Belgrad í heimsókn í L-riðli Evrópudeildar UEFA í knattspyrnu á Old Trafford í Manchester í gær. Leiknum lauk með 3:0-sigri United þar sem fremstu menn liðsins voru allir á skotskónum, þeir Mason Greenwood, Anthony Martial og Marcus Rashford.

United hefur ekki gengið neitt sérstaklega vel að skora mörk á þessari leiktíð og hefur sóknarleikur liðsins oft á tíðum verið harðlega gagnrýndur af stuðningsmönnum liðsins. Liðið skoraði hins vegar þrjú góð mörk í gær en þetta var í þriðja sinn á tímablinu sem liðið skorar þrjú mörk eða meira í leik á keppnistímabilinu.

Marcus Rashford hefur stigið upp að undanförnu og var hann að skora sitt áttunda mark á tímabilinu í sextán leikjum. Martial hefur einni verið að koma sterkur inn en United þarf nauðsynlega á þeim tveimur að halda, ef liðið ætlar sér að berjast um Evrópusæti.

United er komið með annan fótinn í 32-liða úrslit Evrópudeildarinnar og dugar eitt stig úr síðustu tveimur leikjum sínum til þess að fara áfram í útsláttakeppnina, en nánar má lesa um þetta í Morgunblaðinu í dag.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert