Manchester City minnkaði forskot Liverpool á toppi ensku úrvalsdeildarinnar í þrettán stig í kvöld með því að sigra Sheffield United á útivelli, 1:0.
Sergio Agüero skoraði sigurmarkið á 73. mínútu, nýkominn inn á sem varamaður, eftir sendingu frá Kevin De Bruyne.
City er þá komið með 51 stig en Liverpool er með 64 stig og á tvo leiki til góða. Sheffield United er í 7. sæti með 33 stig.
Svipmyndir úr leiknum má sjá hér fyrir neðan en mbl.is færir ykkur efni úr enska boltanum í samvinnu við Símann sport.