Burnley gerði sér lítið fyrir og vann 2:0-sigur á Manchester United í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta á Old Trafford í kvöld.
United var mikið með boltann í fyrri hálfleik en gekk illa að skapa sér færi gegn skipulögðu liði Burnley. Chris Wood kom svo gestunum yfir á 39. mínútu eftir að United kom ekki boltanum í burtu eftir aukaspyrnu og staðan í hálfleik var 1:0.
Sú staða breyttist í 2:0 á 56. mínútu er Jay Rodriguez skoraði stórglæsilegt mark úr þröngu færi. United gekk mjög illa að opna vörn Burnley eftir það. Sigurinn er sá fyrsti hjá Burnley á Old Trafford síðan 1962.
Burnley er nú með 30 stig í 13. sæti og Manchester United er í fimmta sæti með 34 stig.
Man. Utd | 0:2 | Burnley | Opna lýsingu Loka | |
---|---|---|---|---|
90. mín. Luke Shaw kemur boltanum í netið en þetta telur ekki, þar sem það var brot í aðdragandanum. | ||||
Augnablik — sæki gögn... |