Manchester United er komið í fimmta sæti ensku úrvalsdeildarinnar í knattspyrnu eftir öruggan sigur gegn Watford á Old Trafford í Manchester í dag, 3:0.
Manchester United er nú með 41 stig í fimmta sæti deildarinnar og hefur eins stigs forskot á bæði Tottenham og Sheffield United sem eru í sjötta og sjöunda sætinu. Watford er hins vegar í vondum málum í nítjánda og næstneðsta sætinu með 24 stig, tveimur stigum frá öruggu sæti.
Svipmyndir úr leiknum má sjá í spilaranum hér fyrir ofan en mbl.is færir ykkur efni úr enska boltanum í samvinnu við Símann sport.