Saman getum við sigrast á þessu

Juan Mata er ljúflingur.
Juan Mata er ljúflingur. AFP

Spænski knattspyrnumaðurinn Juan Mata hvetur alla knattspyrnumenn til að gera meira í baráttunni við kórónuveiruna. Mata, sem leikur með Manchester United, hefur verið duglegur að láta til sín taka í góðgerðarmálum. 

„Það er fallegt að sjá jákvæð viðbrögð leikmanna og hversu margir eru til í að hjálpa. Við getum hins vegar gert meira. Ég hvet alla leikmenn til að standa saman og gera það sem þeir geta til að hjálpa. Saman getum við sigrast á þessu,“ sagði Mata í yfirlýsingu. 

Mata er stofnandi Common Goal-samtakanna, en liðsmenn þeirra gefa 1% launa sinna til góðgerðarmála. Hann hvetur leikmenn einnig til að taka sér 90 mínútur í hverri viku til að svara stuðningsmönnum á Instagram, og bæta þannig upp fyrir leiki sem er búið að fresta. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert