Newcastle og West Ham skildu jöfn, 2:2, í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag. West Ham komst tvisvar yfir í leiknum en í bæði skiptin voru Newcastle-menn snöggir að jafna.
Newcastle er í tólfta sæti með 43 stig og West Ham í sextánda sæti með 31 stig, fjórum stigum fyrir ofan fallsætin.
Svipmyndir úr leiknum má sjá hér fyrir ofan en mbl.is færir ykkur efni úr enska boltanum í samvinnu við Símann sport.