Enska knattspyrnufélagið Manchester City hefur staðfest kaupin á Ferran Torres frá Valencia. Kaupverðið er um 23 milljónir evra.
Torres, sem er tvítugur Spánverji, hefur leikið vel með Valencia á leiktíðinni og varð hann yngsti leikmaðurinn í sögu félagsins til að skora í Meistaradeildinni fyrir áramót. Hann hefur skrifað undir fimm ára samning í Manchester og er væntanlega ætlað að fylla í skarð Leroy Sané sem gekk til liðs við Bayern München fyrr í sumar.
Torres verður ekki eini leikmaðurinn sem City kaupir í sumar ef marka má enska fjölmiðla. Guardian greindi frá því í gær að viðræður við Bournemouth um kaup á miðverðinum Nathan Aké eru hafnar. Aké hefur verið einn besti leikmaður Bournemouth síðustu ár en hann kom til félagsins frá Chelsea og hefur leikið með hollenska landsliðinu að undanförnu.
Here we go! We’re delighted to announce the signing of @FerranTorres20 from Valencia on a five-year deal ✍️
— Manchester City (@ManCity) August 4, 2020
🔵 #ManCity | https://t.co/axa0klD5re pic.twitter.com/hzCbdoRsxL