Brighton vann sinn fyrsta sigur á tímabilinu í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta í heimsókn sinni til Newcastle í dag. Urðu lokatölur 3:0 og var sigurinn afar sannfærandi.
Frakkinn Neal Maupay mætti klár í leikinn því hann skoraði fyrsta mark strax á 4. mínútu eftir afar klaufalega tæklingu Allans Saint-Maximins innan teigs. Skaut Maupay beint á markið úr vítaspyrnunni sem fylgdi og kom Brighton yfir.
Maupay var ekki hættur því hann bætti við öðru marki sínu á sjöundu mínútu þegar hann kláraði af öryggi framhjá Karl Darlow í marki Newcastle af stuttu færi. Aaron Connolly gulltryggði svo 3:0-sigur með marki á 83. mínútu og kom rautt spjald Yves Bissouma á 89. mínútu ekki að sök hjá Brighton.
Mörkin og rauða spjaldið má sjá í spilaranum hér að ofan.