Joel Matip, miðvörður enska knattspyrnufélagsins Liverpool, er tæpur fyrir leik liðsins gegn Ajax í Meistaradeildinni í Amsterdam í Hollandi á miðvikudaginn kemur en það er Liverpool Echo sem greinir frá þessu.
Matip fann fyrir eymslum eftir 2:2-jafntefli Liverpool og Everton í ensku úrvalsdeildinni á Goodison Park í Liverpool á laugardaginn síðasta.
Kamerúninn hefur verið afar óheppinn með meiðsli, undanfarin tímabil, og byrjaði sem dæmi einungis átta leiki í ensku úrvalsdeildinni á síðustu leiktíð.
Óvíst er hvort Matip geti tekið þátt í leiknum gegn Ajax, þótt hann muni ferðast með liðinu til Hollands, en Virgil van Dijk, miðvörður Liverpool, verður frá næstu mánuðina vegna meiðsla í hné.
Eins og staðan er núna er Joe Gomez því eini miðvörður aðalliðsins sem er heill heilsu og klár í slaginn en Fabinho getur einnig leyst stöðuna, sem og Jordan Henderson, fyrirliði liðsins.