Brighton & Hove Albion og West Bromwich Albion skildu jöfn 1:1 í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í kvöld.
Brighton sem lék á heimavelli komst yfir þegar á 40. mínútu Jake Livermore skoraði þá sjálfsmark.
Brighton var ekki langt frá því að ná í þrjú stig en Karlan Grant jafnaði fyrir WBA á 83. mínútu.
Liðin eru á mjög svipuðum slóðum í deildinni eða í 16. og 17. sæti. Brighton með 5 stig en WBA 3 stig og bíður liðið enn eftir fyrsta sigrinum á leiktíðinni.