Burnley og Chelsea sýndur beint á mbl.is

Kai Havertz er einn af nýju mönnunum hjá Chelsea.
Kai Havertz er einn af nýju mönnunum hjá Chelsea. AFP

Burnley og Chelsea mætast í sjöundu umferð ensku úrvalsdeildarinnar í knattspyrnu á Turf Moor klukkan 15 og hægt er að sjá leikinn í beinni útsendingu hér á mbl.is.

Útsendingin hefst kl. 14.30 með upphitun fyrir leikinn og er á sérvefnum Enski boltinn.

Jóhann Berg Guðmundsson og félagar í Burnley eru enn í leit að sínum fyrsta sigri en þeir eru með eitt stig eftir fimm leiki. Chelsea er hinsvegar um miðja deild með 9 stig eftir sex leiki. Jóhann Berg missir af þessum leik vegna smávægilegra meiðsla.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert