Aston Villa fór illa með Arsenal á Emirates-leikvanginum í kvöld, vann 3:0-sigur í viðureign liðanna í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu. Mörkin og tilþrifin úr leiknum má sjá í spilaranum hér að ofan.
Bukayo Sako skoraði sjálfsmark áður en Ollie Watkins setti tvö mörk fyrir Villa en hann skoraði þrennu í 7:2-sigrinum ótrúlega gegn Liverpool fyrr á tímabilinu. Aston Villa er nú með 15 stig í 6. sæti deildarinnar en Arsenal er í 11. sæti með 12 stig.