Leeds og Arsenal skiptu með sér stigunum er þau mættust í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta í kvöld en lokatölur urðu 0:0-jafntefli. Mörkin og tilþrifin má sjá í spilaranum hér að ofan.
Leeds var töluvert sterkari aðilinn stærstan hluta leiks og fór boltinn þrívegis í tréverkið á marki Arsenal í seinni hálfleik en Arsenal lék síðustu 40 mínúturnar manni færri þar sem Nicolas Pépé fékk beint rautt spjald fyrir að skalla Gianni Alioski þegar boltinn var víðsfjarri.
Spánverjinn Rodrigo komst nálægt því að skora fyrir Leeds um miðjan seinni hálfleikinn er hann skaut í slánna með fallegu skoti, Patrick Bamford skallaði svo í stöng tíu mínútum fyrir leikslok áður en Raphinha skaut í stöng í uppbótartíma.
Bukayo Saka átti langbesta færi Arsenal er hann slapp einn inn fyrir skömmu fyrir leikslok en Illan Meslier í marki Leeds varði glæsilega frá honum.
Arsenal er í 11. sæti deildarinnar með 13 stig og Leeds í 14. sæti með 11 stig.