Rooney stýrir Derby af bekknum

Wayne Rooney stýrir Derby af hliðarlínunni um helgina.
Wayne Rooney stýrir Derby af hliðarlínunni um helgina. AFP

Wayne Rooney leikur ekki með Derby þegar liðið fær Wycombe Wanderers í heimsókn í ensku B-deildinni í knattspyrnu á morgun en þetta staðfesti félagið í dag.

Rooney hefur séð um að stýra liðinu í undanförnum leikjum eftir að Hollendingurinn Philip Cocu var látinn taka pokann sinn.

Sóknarmaðurinn hefur hins vegar tekið þátt í leikjum liðsins líka og Liam Rosenoir hefur stýrt því af bekknum en í dag var ákveðið að Rooney myndi einbeita sér að því að stýra liðinu á hliðarlínunni.

Óvíst er hver tekur við liðinu en Derby er í neðsta sæti ensku B-deildarinnar með 6 stig eftir fyrstu þrettán leiki tímabilsins, 4 stigum frá öruggu sæti.

Rooney hefur hefur verið orðaður við stjórastöðuna hjá félaginu en Derby ætlar sér að ráða nýjan knattspyrnustjóra á næstu dögum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert