Ekki boðlegt í ensku úrvalsdeildinni

Frank Lampard var pirraður út í sína menn eftir ósigur …
Frank Lampard var pirraður út í sína menn eftir ósigur kvöldsins. AFP

Frank Lampard, knattspyrnustjóri Chelsea, var ómyrkur í máli eftir tap liðsins gegn Wolves í ensku úrvalsdeildinni í Wolverhampton í kvöld.

Leiknum lauk með 2:1-sigri Wolves en Pedro Neto skoraði sigurmark Wolves á fimmtu mínútu uppbótartíma eftir skyndisókn.

Olivier Giroud kom Chelsea yfir í upphafi síðari hálfleiks áður en Daniel Podence jafnaði metin fyrir Wolves á 66. mínútu.

„Ég er fyrst og fremst svekktur að hafa tapað leiknum,“ sagði Lampard í samtali við Sky Sports eftir leik en þetta var annað tap Chelsea í deildinni í röð.

„Við vorum með góða stjórn á leiknum í stöðunni 1:0 en við höfum líka oft spilað betur en við gerðum í kvöld. Við áttum líka að eiga betur við skyndisóknir þeirra.

Við spiluðum nokkra leiki í röð án þess að tapa og kannski voru leikmenn liðsins komnir of hátt upp í skýin.

Þegar að þú heldur að þú sért að spila vel þá geta svona hlutir gerst og það er ekki boðlegt að hugsa svoleiðis í ensku úrvalsdeildinni.

Við þurfum allir að gera betur,“ bætti Lampard við.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert