Tilþrifin: Úlfarnir sneru taflinu við

Rúben Neves og Pedro Neto skoruðu mörk Wolves sem sneri taflinu við gegn Southampton í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í dag. Dýr­ling­arn­ir í Sout­hampt­on hafa þar með tapað sex leikj­um í röð í deild­inni.

Danny Ings kom heimamönnum yfir snemma leiks með afar laglegu marki áður en gestirnir bættu á kvalir dýrlinganna en öll helstu tilþrif leiksins má sjá í spilaranum hér að ofan.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert