Arsenal jafnaði á sjöundu mínútu uppbótartímans

Eddie Nketiah fagnar jöfnunarmarkinu.
Eddie Nketiah fagnar jöfnunarmarkinu. AFP

Arsenal fór langt með að fella Fulham úr ensku úrvalsdeildinni í fótbolta er liðin gerðu 1:1-jafntefli á Emirates-vellinum í dag. 

Eftir markalausan fyrri hálfleik, þar sem mark frá Dani Ceballos miðjumanni Arsenal var dæmt af vegna naumrar rangstöðu, skoraði Josh Maja fyrsta mark leiksins fyrir gestina úr víti á 59. mínútu. 

Allt benti til þess að það yrði sigurmarkið en Edward Nketiah jafnaði fyrir Arsenal á sjöundu mínútu uppbótartímans og þar við sat. 

Arsenal er nú í níunda sæti með 46 stig en Fulham er í 18. sæti með 27 stig, sex stigum frá öruggu sæti þegar liðið á aðeins fimm leiki eftir. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert