Gylfi og Bjarni velja úrvalslið tímabilsins (myndskeið)

Í Vellinum á Símanum Sport í gær fengu Gylfi Einarsson og Bjarni Þór Viðarsson það verðuga verkefni að velja úrvalslið ensku úrvalsdeildarinnar fyrir tímabilið sem lauk í gær.

Sparkspekingarnir tveir voru sammála um ýmislegt en eins og gengur og gerist ósammála um annað í vali sínu.

Í spilaranum hér að ofan má sjá Gylfa og Bjarna Þór fara yfir úrvalslið sín og ræða um þau en mbl.is fær­ir ykk­ur efni úr enska bolt­an­um í sam­vinnu við Sím­ann Sport. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert